Your Travel Experience with Baendaferdir
Day 1 - 3
Hotel Century Old Town Prague
Brottför frá Keflavík kl. 7:20. Mæting í Leifsstöð um 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Prag kl. 11:55 að staðartíma. Við höldum inn í þessa yndisleg borg þar sem við gistum í þrjár nætur á vel staðsettu hóteli.
Day 1
Transfer á hótel
Prag
Day 2
Skoðunarferð í Prag
Fyrri part dags verður farið í skoðunarferð um þessa heillandi höfuðborg Tékklands. Íbúar borgarinnar eru 1,2 milljónir en Prag hefur um aldir verið ein helsta menningarmiðstöð Evrópu. Farið verður að Karlsbrúnni, ráðhúsinu með stjörnuklukkunni, í gyðingahverfið og á Wenceslas torgið svo eitthvað sé nefnt. Upplagt er að enda ferðina á aðventumarkaðinum við ráðhúsið. Þar er að finna handverk, skreytingar og úrval ýmiss konar varnings sem hentar vel í jólapakkana. Einnig má fá innsýn í matarmenningu borgarinnar en í boði eru fjölbreyttar freistingar í mat og drykk. Þar má nefna Trdelník, sem er sætabrauð, vánočka, jólabrauð Tékka, hunangsvínið medovina og jólakökuna Medovník, grillaðar pylsur sem nefnast Klobása, vinsælt flatbrauð með áleggi, Langoš, steiktur ostur sem er einstakur götumatur í Tékklandi og jólaglöggina svařák. Það fer enginn svangur eða þyrstur heim af jólamarkaðinum.
Day 3
Frjáls dagur
Við njótum dagsins í þessari fögru og heillandi borg. Upplagt er að skoða sig betur um í borginni og kanna líf bæjarbúa á aðventunni. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður á veitingastað frá 13. öld sem stendur við ráðhústurninn, en ein af frægustu stjörnuklukkum veraldar prýðir turninn.