Buspaket Páskar Suður Ítalía

Tour/Activity , Italy

Your Travel Experience with Baendaferdir

Day 1

23. mars | Flug til Rómar & Caserta

Brottför frá Keflavík kl. 07:50 og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Róm kl. 13:30 að staðartíma. Þaðan verður ekið til borgarinnar Caserta í Campaní héraðinu þar sem gist verður í eina nótt á góðu hóteli.  

Day 1 - 2

Hotel dei Cavalieri

Gist verður í eina nótt á Hotel Dei Cavalieri sem er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel á frábærum stað í hjarta Mílanó, aðeins um 200 metra frá Piazza del Duomo og dómkirkjunni. Hótelið er í sögulegri byggingu og býður upp á þægileg og smekklega innréttuð herbergi. Á efstu hæðinni er The Roof Milano, vinsæll veitingastaður og bar með rúmgóðri þakverönd og fallegu útsýni yfir borgina. Staðsetningin er einstaklega hentug til að njóta miðborgar Mílanó, enda verslanir, veitingastaðir og helstu kennileiti borgarinnar í þægilegu göngufæri.

Day 2 - 9

Hotel del Levante

Gist verðir í 7 nætur á Hotel del Levante sem er fjögurra stjörnu strandhótel í Torre Canne á Apúlíuhéraði á Suður-Ítalíu. Hótelið stendur við Adríahafið og hefur beinan aðgang að einkaströnd, auk tveggja útisundlauga og fallegs garðsvæðis. Herbergin eru þægileg og innréttuð í hlýlegum Miðjarðarhafsstíl og á hótelinu eru veitingastaður og bar. Staðsetningin hentar vel til að njóta afslappaðs strandlífs en jafnframt eru þekktir staðir á borð við Alberobello, Ostuni og Monopoli í þægilegri akstursfjarlægð. Hotel del Levante er góður kostur fyrir þá sem vilja sameina sól, sjó og notalegt ítalskt andrúmsloft.

Day 9 - 11

NH Napoli Panorama

Gist í 2 nætur á NH Napoli Panorama sem er fjögurra stjörnu hótel á frábærum stað í hjarta Napólí, í stuttu göngufæri frá gamla bænum, Via Toledo og helstu kennileitum borgarinnar. Hótelið er í einni hæstu byggingu borgarinnar og herbergin eru á efri hæðum, þaðan sem víða er stórkostlegt útsýni yfir Napólí, Napólíflóa og Vesúvíus. Á hótelinu eru rúmgóð og þægileg herbergi, veitingastaður, bar og líkamsræktaraðstaða. Höfnin er einnig skammt frá og því er staðsetningin sérlega hentug til að njóta þess besta sem Napólí hefur upp á að bjóða.