Hjólað á Suður-Ítalíu

Tour/Activity , Italy

About this activity

Hér er í boði sannkallaður Ítalíudraumur þar sem hjólað verður um töfrandi svæði Suður-Ítalíu. Ferðin hefst í Róm en þaðan er ekið til bæjarins Caserta norður af Napólí.

Your Travel Experience with Baendaferdir

Day 1

Flug til Róm & Caserta

Brottför frá Keflavík og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Róm og síðan ferðast með rútu í bænum Caserta, u.þ.b 40 km norður af Napólí. Þar er gist eina nótt

Day 2

Ferðast til Alberobello

Eftir góðan morgunverð verður ekið suður að sporanum í hæl Ítalíustígvélsins og að bænum Alberobello. Landslagið á leiðinni er fjölbreytt og heillandi, allt frá smáþorpum og litlum dölum upp í rólegar sveitir. Hér gistum við fjórar nætur. Á hótelinu er sólbaðsaðstaða með tveimur útisundlaugum ásamt heilsulind.

Day 2 - 6

Gisting í Alberobello

Hotel La Chiusa di Chietri er fjögra stjörnu hótel með tveimur útisundlaugum ásamt heilsulind

Day 3

Hjólað um Alberobello

Við byrjum þennan fyrsta ævintýradag í bænum Alberobello, miðstöð Trulli svæðisins í Puglia. Heimsókn í Alberobello er mikil upplifun en árið 1996 var bærinn settur á heimsminjaskrá UNESCO fyrir sérkennilegar byggingar. Þar eru um 1.000 lítil og hringlaga, hvítkölkuð, hlaðin steinhús með keiluþökum. Húsin eru einkennandi fyrir svæðið og voru notuð sem hús hjarðmanna og bænda en í stærsta húsinu er að finna merkilegt safn. Það er einstaklega heillandi að ganga um götur þessa sögulega bæjar og til að fræðast aðeins betur um söguna fáum leiðsögn með heimamanni. Eftir gönguna gefst frjáls tími til að skoða sig betur um en hér má finna fjölda minjagripaverslana og víða býðst að smakka á fljótandi gulli heimamanna, ólífuolíunni sem á þessum slóðum drýpur af hverju strái. Hjólað til baka á hótel.

  • Hjólavegalengd u.þ.b. 40 km
  • Hækkun u.þ.b. 300 m
  • Erfiðleikastig: auðvelt til miðlungs

Day 4

Hjólað um Locorotondo, Martina Franca & vínsmökkun

Það er mikil upplifun að koma til borgarinnar Matera sem er á dagskrá okkar í dag en hún hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 1993. Við förum með rútu að bænum. Ólýsanlegt er að koma til Matera og sjá hús, kirkjur og hallir frá 4. öld f. Kr. sem hoggnar eru inn í bergið líkt og katakompurnar. Árið 1950 bjuggu enn um 20.000 manns hér en þessir hellabústaðir eru kallaðar Sassi. Svæðið þykir afar tilkomumikið og minnir á köflum á biblíutímann enda hafa hér merkar kvikmyndir verið teknar upp eins og Píslarganga Krists og Ben Húr. Eftir þessa heillandi heimsókn til Matera snúum við aftur til baka með rútu á hótelið.

  • Hjólavegalengd u.þ.b 30 km
  • Hækkun u.þ.b. 350 m
  • Erfiðleikastig: miðlungs

Martina Franca

Hjólað er um Martina Franca

Day 5

Hjólað um Matera

Það er mikil upplifun að koma til borgarinnar Matera sem er á dagskrá okkar í dag en hún hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 1993. Við förum með rútu að bænum. Ólýsanlegt er að koma til Matera og sjá hús, kirkjur og hallir frá 4. öld f. Kr. sem hoggnar eru inn í bergið líkt og katakompurnar. Árið 1950 bjuggu enn um 20.000 manns hér en þessir hellabústaðir eru kallaðar Sassi. Svæðið þykir afar tilkomumikið og minnir á köflum á biblíutímann enda hafa hér merkar kvikmyndir verið teknar upp eins og Píslarganga Krists og Ben Húr. Eftir þessa heillandi heimsókn til Matera snúum við aftur til baka með rútu á hótelið.

  • Hjólavegalengd u.þ.b 30 km
  • Hækkun u.þ.b. 350 m
  • Erfiðleikastig: miðlungs

Day 6

Day 6 - 10

Gist er á fjögra stjörnu hóteli í Otranto sem heitir Basiliani CDSHotels.

Day 7

Nú gefst tækifæri til að slaka á og njóta þessa dásamlega bæjar, Otranto. Það er upplagt að skoða sig betur um, líta inn í litlar, forvitnilegar verslanir og kynna sér líf bæjarbúa. Fyrir þá sem vilja skoða sig um hjólandi, þá verða rafhjólin tiltæk. Svo er alltaf hægt að slaka bara á og láta fara vel um sig á hótelinu og nýta góða aðstöðu þess, sett tærnar upp í loft í sólbaðsaðstöðunni eða heilsulindinni.

Day 8

Eftir notalegan frjálsan dag höldum við hjólaferð okkar áfram. Leið dagsins liggur með fram ströndinni norðan við Otranto. Útsýnið yfir ströndina er ógleymanlegt, þar sem túrkísblár sjórinn, bogadregnu hvítu Saint‘Andrea klettarnir og Grotta della Poesia, eða ljóðahellarnir, sýna sínar bestu hliðar. Hellarnir, sem þykja ein af náttúruperlum Ítalíu, hafa myndast í kalksteininum vegna sjávarrofs og móta einskonar náttúrulaug fyllta af túrkísbláum sjó. Á góðum veðurdögum er freistandi að skella sér út í. Hjólað til baka að hóteli.

  • Hjólavegalengd u.þ.b 50 km
  • Hækkun u.þ.b. 50 m
  • Erfiðleikastig: auðvelt til miðlungs

Day 9

Í dag hjólum við eftir einni fegurstu strandleið Ítalíu þar sem náttúran leikur við okkur. Við hefjum ferðina frá hótelinu og hjólum með fram stórfenglegum klettum og litlum víkum. Hvítir og brattir klettar rísa hátt yfir tærbláan sjóinn og inn á milli skjóta skógarjaðrar upp kollinum. Náttúrufegurðin skartar hér sínu fegursta þar sem sólin glitrar á yfirborði sjávar og ferskur sjávarilmurinn fylgir okkur alla leið á áfangastað, Santa Maria di Leuca, þar sem Adríahafið og Jónahafið renna saman og skapa ógleymanlegt sjónarspil.

  • Hjólavegalengd u.þ.b 55 km
  • Hækkun u.þ.b. 450 m
  • Erfiðleikastig: miðlungs

Day 10

Eftir góðan morgunverð segjum við skilið við Otranto og höldum aftur til Caserta. Á leið okkar gerum við stopp í töfrandi borginni Lecce, sem oft er kölluð Flórens suðursins vegna einstaks barokkarkitektúrs. Borgin er líka lífleg, með fjölmörgum kaffihúsum, handverkshúsum og götumörkuðum. Hér skoðum við okkur aðeins um áður en haldið verður áfram til Caserta þar sem við gistum eina nótt.

Day 11