Panamaskurðurinn janúar 2027

Tour/Activity , USA

Your Travel Experience with Baendaferdir

Day 1

25. janúar | Siglingin hefst

Farið frá hótelinu snemma morguns og farið með rútu til Miami, beint á höfn þar sem Norwegian Sun bíður okkar. Lagt úr höfn kl. 16:00. Fundur með fararstjóra, labbitúr um skipið og sameiginlegur kvöldverður.

Day 2

26. janúar | Great Stirrup Cay

Komið til Great Stirrup Cay kl 07:00 og farið kl 16:00. Great Stirrup Cay er eyja sem skipafélagið á. Hér er gott að snorkla og slappa síðan af á ströndinni eða skutlast yfir flóann svífandi í zipline.

Day 2 - 3

Á siglingu allan daginn og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða. Það er nóg við að vera um borð.

Sigling til Cabo Rojo

Day 3 - 4

29. janúar | Oranjestad

Komum kl 11:00 og förum á ný kl 19:00. Oranjestad er höfuðborg Aruba, þekkt fyrir litrík hús, verslun og afslappaða karabíska stemningu.

Day 4 - 5

30. janúar | Willemstad

Komið kl.07:00 og farð kl.17:00. Willemstad er höfuðborg Curaçao, þekkt fyrir litrík nýlenduhús, sögulegan miðbæ og fallega höfn. Borgin er á heimsminjaskrá UNESCO og einkennist af hollenskum áhrifum, karabískri stemningu og lifandi menningarlífi.

Day 5 - 7

1. febrúar | Cartagena Kólombíu

Komið kl.06:00 og farið kl.14:00. Cartagena er strandborg á Karabíuströnd Kólumbíu, þekkt fyrir sögulegan gamla bæ, litskrúðugar götur og vel varðveittan borgarmúr. Borgin sameinar ríka nýlenduarfleifð, karabíska stemningu og líflega menningu, með ströndum, tónlist og matarmenningu sem einkenna andrúmsloftið.

Day 7 - 8

2. febrúar | Panama skipaskurðurinn-Gatum vatn Panama

Förum upp skipastigann Atlantshafsmegin snemma morguns og upp á Gatún vatnið þar sem við stoppum í smá tíma og förum síðan niður skipastigann sömu megin og við fórum upp kl 15:00. Gaman að fylgjast með því. Colon Komið kl.17:00 og farð kl.20:00. Colón er hafnarborg við Karabíuströnd Panama. Stutt stopp og rölt í heljarinnar flotta verslunarmiðstöð sem er á hafnarbakkanum.

Day 8 - 9

3. febrúar | Puerto Limon

Komið kl.06:45 og farið kl.13:30. Puerto Limón er hafnarborg á karabísku strönd Kosta Ríka, þekkt fyrir ríka afrísk-karabíska menningu, regnskóga og líflega tónlist. Borgin er aðgangsstaður að þjóðgörðum, ströndum og náttúrulífi svæðisins.

Day 9 - 12

6. febrúar | Siglingu lýkur

Komið kl.07:00 til Miami og brottför frá skipi kl. 10:00. Gist verður í Miami næstu tvær nætur á Hyatt Hotel.

Cruises
Spa & Wellness
Day Trips & Excursions
Boat Tours