Páskar á Malaga 2027

Tour/Activity , Spain

Your Travel Experience with Baendaferdir

Day 1 - 2

24. mars | Flug til Málaga & Torremolinos

Brottför frá Keflavík kl. 08:00. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Málaga kl. 13:45 að staðartíma. Við keyrum að Costa del Sol ströndinni og komum á hótelið okkar í Torremolinos þar sem við gistum næstu sjö nætur. Á hótelinu okkar eru tvær sundlaugar, líkamsrækt, heilsulind og baðströnd.

Day 2 - 3

25. mars | Frjáls dekurdagur í Torremolinos

Dekurdagur til að njóta lífsins í Torremolinos sem er staðsettur á hinni dásamlegu sólarströnd Spánar, Costa del Sol. Hér er tilvalið að kanna fallegar strandir, sóla sig, fá sér sundsprett eða ganga meðfram standgötunni Paseo Marítimo en þar er urmull kaffihúsa og veitingastaða. Einnig er hægt að kíkja í verslanir, til dæmis á aðalverslunargötu bæjarins Calle San Miguel en gamli bærinn er í 500 metra fjarlægð frá hóteli okkar.