Your Travel Experience with Baendaferdir
Day 1 - 2
25. mars | Flug til Aþenu
Brottför frá Keflavík kl. 07:30 og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Millilent í Kaupmannahöfn kl. 11:45. Áfram haldið frá Kaupmannahöfn til Aþenu kl. 14:25. Lending í Aþenu kl. 18:40 að staðartíma. Gist í eina nótt á hóteli í Aþenu.
Day 2 - 3
26. mars | Kórinþuskurðurinn, Epídárus & Nafplio
Eftir morgunverð keyrum við til bæjarins Nafplio á Pelópsskaganum með viðkomu hjá Kórinþuskurðinum og leihúsinu í Epídárus. Korinþuskurðurinn var tekinn i notkun á síðari hluta 19. aldar og er mikið mannvirki og í Epidárus er fornt leikhús sem er með besta hljómburð allra leikhúsa fornaldar. Hádegiverður í litla strandbænum Tolo og þaðan er svo keyrt til Nafplio. Gamli feneyski bæjarhlutinnn er einn sá fallegasti í Grikklandi enda var Nafplio valinn til að vera fyrsta höfuðborg hins nýja gríska ríkis eftir að Tyrkirnir hörfuðu frá Grikklandi. Eftirmiðdagur í Nafplio og kvöldverður á hótelinu.
Day 3 - 4
27. mars | Mýkena & keyrt til Delfí
Í dag keyrum við til Delfí, en stoppum í leiðinni í hinni sögufrægu Mýkenu þar sem við skoðum bæði háborgina og gröf Atreifs. Við stoppum einnig í einu fallegasta skíðaþorpi Grikklands sem hangir í hlíðum Parnasuss fjallsins. Þegar við komum til Delfí er eftirmiðdagurinn frjáls en við borðum kvöldmat saman á veitingastað í nágrenni við hótelið.