Páskar í Lissabon

Tour/Activity , Portugal

Your Travel Experience with Baendaferdir

Day 1

23.mars

Brottför frá Keflavík kl. 08:30 og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Lissabon kl. 12:50 að staðartíma. Gist í sjö nætur á góðu hóteli í Lissabon. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli. 

24.mars

Dagurinn í dag er tileinkaður höfuðborg Portúgals, Lissabon. Hún er stærsta borg landsins og er réttilega lýst sem einni af fallegustu stórborgum Evrópu. Við förum í skoðunarferð með rútu og sjáum helstu kennileiti og merka minnisvarða borgarinnar. Þar má meðal annars nefna 15. aldar turninn Torre de Belém sem er eitt frægasta kennileiti Lissabon. Einnig glæsilegt minnismerki um landvinninga Portúgals, Padrão dos Descobrimentos. Við keyrum rauðu 25. apríl brúnna sem liggur yfir Tagus ánna og skoðum hina gríðarstóru Kristsstyttu sem þar stendur, þaðan er líka glæsilegt útsýni yfir borgina. Við höldum áfram með fram höfninni til Praça do Comércio en þar stóð konungshöllin fram að jarðskjálfta sem varð neðansjávar árið 1755. Við göngum um litríka Alfama hverfið sem tekur á móti okkur með sínum heillandi, hlykkjóttu götum og litlu torgum þar sem tíminn virðist hafa staðið í stað, enda er þetta eitt elsta hverfi Lissabon. Komum einnig að dómkirkjunni, Sé Patriarcal, sem er elsta kirkja borgarinnar. Um kvöldið fáum við svo að njóta klassískrar portúgalskrar fadó tónlistar

25,mars

Í dag er ferðinni haldið til ævintýrabæjarins Sintra sem er einn fallegasti bær Portúgals, þekktur fyrir glæsilegar hallir og milt loftslag. Bærinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Í gönguferð um miðbæinn heimsækjum við þjóðarhöllina, Palácio Nacional de Sintra, sem reist var í upphafi 16. aldar og þjónaði sem sumarbústaður portúgölsku konunganna fram á 21. öldina. Höllin er áhugaverð fyrir þær sakir að hún sýnir hvernig portúgalskur stíll hefur þróast í gegnum aldirnar og undirstrikar sérstaklega þróun flísalistarinnar. Á leiðinni til baka til Lissabon verður farið fram hjá Cabo da Roca, vestasta punkti meginlands Evrópu, en frá klettum þess er tilkomumikið útsýni yfir Atlantshafið. Portúgalska þjóðskáldið Luís de Camões lýsti einmitt staðnum með eftirfarandi orðum: „Hér… þar sem jörðin endar og hafið byrjar.“ Við komum einnig við í smábænum Estoril, sem hefur alla tíð verið athvarf auðugrar yfirstéttarinnar við sjávarsíðuna. Íbúar Estoril lifðu lengi vel á fiskveiðum en nú er þetta mikill ferðamannabær. Sameiginlegur kvöldverður á veitingastað